váá það er langt síðan ég var hér síðast, full búið að gerast en einhvernvegin hef ég ekki nennt að koma hér inn og segja aðeins frá því. Bara SKIL ekki afhverju.
en jæja þarna um það leiti sem ég skrifaði síðast þá vorum við að fara til Köben. Köben var æði, verst bara að við gátum ekki verið lengur. Við gistum á einu dýrasta hóteli sem veit um miðað við hvernig herbergin voru!!! jakk og það var ekki einu sinni klósett inni hjá okkur en samt dýrt! Í götunni sem hótelið var við voru ekkert nema hórur og dópistar, sá nokkrar hórur selja sig og sá allnokkra dópist vera að sprauta sig. held við höfum alveg verið í "besta" hverfinu;) hehehe
Fórum náttúrulega í Tívolí, brjálað stuð þar, prufuðum öll stóru tækin nem róluna, slepptum henni. Fórum í eitt tæki sem nærrí því drap okkur, ég er ekki að grínast. svo þegar við komum úr því hálf dauðar hló kallinn bara að okkur!! mér fannst hann ekki fyndinn!!!
Komum svo heim og erum eila bara búnar að vera að vinna síðan þá, eða allavega ég, það er eins og þau hafi allt í einu fattað að ég væri að fara og ákveðið að nota mig sem mest áður. en mér finnst það bara fínt, meiri peningur handa mér:) hehehe
Sá í gær að einn af æsku "VINUM" mínum er kominn í heimsókn. kom reglulega í heimsókn á hálfsárs fresti þegar ég var í grunnskóla og einusinni þegar ég var í framhaldskóla, hafði svo ekki séð hann síðan þá og var búin að vona að hann/hún/það kæmi bara ekkert aftur. En neinei, heldur ekki að helv. komi ekki í heimsókn í gær og svona líka skæður. Varð alveg óstjórnlega reið og þegar Nína kom heim úr vinnunni í gærkvöldið brunuðum við upp á sjúkrahús til að reyna að "redda" málunum, sem og tókst. Þetta helv. kemur alveg á versta tíma því í dag ætluðum við í einhvern vatsgarð og svo feitt loka djamm í kvöld. ég fór ekki í garðinn í morgun og er skíthrædd um að ég sé ekki að fara á feitt djamm í kvöld. Ég er pirruð!!!!! ég er hringjarinn í Notre Dame!
kem heim eftir 6 daga, nánar tiltekið á föstudaginn. Hlakka óstjórnlega til:) hlakka svo til að hitta allar stelpurnar og þeirra afkvæmi:D hehehe svo brunum við Sólveig norður á sunnudaginn í sveitasæluna:D Baaarrraaaa gaman:D:D:D
Ég er sólbrunnin sem þýðir bara það að það er sól í Danmörku!!! já takk það er sko sól hérna og meira að segja bara frekar heitt:) jeij
Nína átti afmæli á mánudaginn þannig að við gellurnar eyddum deginum í bænum að skoða búðir og leika okkur:) fórum svo út að borða á voða næs stað með geeeeðveikt góðum mat ( namm namm ) og við Bylgja gáfum Nínu afmælisgjöf. Nína var í skýjunum það sem eftir var......;) hehe afmælisgjöfin var svona líka fallega bleik og ef þið viljið sjá myndir af henni þá er bara að fara inn á myspace eða í myndalinkinn hérna við hliðina.
við komumst líka að því um daginn að við erum súper góðar á skúter! Bylgja leifði okkur að prufa tryllitækið hennar... erum ógó góðar....:)
er búin að skella inn nokkrum myndum bæði í DK albúmið og svo Afmæli Nínu.
Það má segja það að við gellurnar hérna eigum okkur gullnu mómennt hérna úti, ætla að segja ykkur frá nokkrum hérna:
Fórum í bíó um daginn og að venju eru náttla auglýsingar á undan myndinni, og jújú þarna kemur trailer af einni mynd og allt í einu snýr Nína sér að mér og segir: Jóhanna ég held að ég sé búin að sjá þessa mynd!! og ég er eins og eitt spurningarmerki því myndin er ekki komin í bíó og segi við hana: Nína, þú ert ekki búin að sjá þessa mynd, ég er rétt búin að láta þig horfa á trailerinn heima í tölvu. Nína horfir á mig STÓRUM AUGUM og segir: Óóóó!!!!
Eins og þið vitið erum við Nína að vinna á heimili fyrir fatlaða og þar er öllu skipt upp í deilir. Ég flakka á milli deilda en Nína er eila alltaf á einni deild nema um daginn var hún beðin að fara á deild sem hún hafði aldrei verið á en ég hafði verið þar nokkrum sinnum. Allt í lagi með það nema þegar hún kemur heim úr vinnunni og við förum svona að spjalla um daginn og veginn kemst ég að svolitlu sem ég hafði ekki haft hugmynd um. Við erum að tala þarna um einn íbúann og þá segir hún: já það er náttla því hann er BLINDUR!!!! ég eins og asni missi kjálkann á mér niður í gólf og gapi......haaaaa!!!!!! er hann blindur!!! neinei þetta vissi ég ekki og var þó búin að vinna þarna nokkrum sinnum......góð Jóhanna
Við Nína erum voða duglegar í því að þegar við förum að sofa þá endum við alltaf á því að spjalla. Og í gærkvöldi/nótt spjölluðum við eins og vanalega og jújú sofnuðum svo auðvitað út frá tuðinu í okkur. Mig fer að dreyma þennan æðislega draum, fallegann karlmann og allann pakkann nema að þegar draumurinn er virkilega að verða skemmtilegur þá fer ég að heyra hávaða í draumnum. ég reyni að hrista þetta í burtu og einbeita mér að fallega karlmanninum þarna nema þessi helv. hávaði heldur bara stanslaust áfram, og mér til mikilla leiðinda vakna ég og draumurinn hverfur, þá fattaði ég hvaða hávaði þetta var, þetta bara Nína. Ég pikka í hana og segi: Nína þú ert farin að hrjóta alveg rosa hátt. Og þá segir hún: neinei ég held ég hafi ekkert verið sofnuð sko!!! mér fannst það nú eitthvað vera furðulegt, því mig var náttla rétt búið að dreyma þennan líka fallega karlmann, þannig ég segi við hana: ég held nú reyndar að við séum búnar að sofa eitthvað. Hún rankar betur við sér og kíkir á símann og segir; já..... klukkan er líka hálf fimm!!! Bara búin að sofa í 4 tíma!!
jæja núna lítur það út að Syrenbakken ( vinnan mín ) sé loksins búin að fatta að ég er ekki asni og geti meira að segja unnið! allavega er ég loksins farin að fá einhverja vinnu þarna hjá þeim. þetta er pottþétt vinkonum mínum á einni deildinni að þakka, ég og þær erum like this!!!! hehehe.... kannski ekki alveg en næstum því :) næsti launaseðill ætti að líta betur út en sá síðasti;)
ég þarf að fara að bulla eitthvað í kommuninni hérna, váá hvað ég nenni því ekki, en maður fær ekki allt sem maður vill!!
við stelpurnar erum að plana stutta Köben ferð 25 - 27 apríl. bara að skreppa smá og leika okkur, vill einhver koma og hitta okkur þar???;) Sólveig?? Þórdís?? Girls????;) ????
hvað er málið að mig dreymi alltaf einhverja steypu?? alltaf einhverjir að reyna að drepa mig og læti!!! held ég sé nett geðveik í hausnum;)
Karmað mitt segir mér að ég sé að fara skóla á Hólum í haust, en litli djöfullinn á öxlinni á mér segir að ég eigi ekki að hugsa svooo stórt!! en ég er líka búin að ákveða að ef háskóli verður ekki málið í haust þá fari ég til Afríku!!!;) ohhh..... ég vildi að ég væri þar núna......
váá hvað ég er fegin að við íslendingarnir ákváðum þarna um árið þegar danir réðu yfir okkur, að vera ekkert að taka upp þeirra tungumál!!! ég er voða hrædd um að danska jaðri við það að vera tungumál, þetta eru ekkert nema slettur úr ÍSLENSKU og Ensku sem þeir setja þeirra óskýra málframburð á!!! ekki heillandi....
jæja það er bara rúmur mánuður þangað til ég kem heim í maí og ég veit þetta ekki vegna þess að ég er búin að vera að telja niður, heldur vegna þess að á hverjum degi er mér sagt þetta á msn;) jújú systir mín er aðeins að minna mig á þetta í bland við að segja mér hvað ég eigi að kaupa handa henni þegar ég kem heim!! alltaf gott að vita að einhver vill bara hafa mig heima;) hehehe
úúú.....var ég búin að segja að ég eignast aftur afkvæmi í vor??? nei ég hélt ekki..........;)
ég lét nínu klippa svona cm af hárinu af mér þannig tæknilega séð er ég rétt komin úr klippinu og er skoooo klikkað flott!!!;) hehe
svo var ég að lita hárið á Nínu og þó ég segi sjálf frá þá er hún bara nokkuð nett líka....;)
en hey þið þarna heima, alltaf þegar ég fer á mbl þá er alltaf verið að segja frá bílslysum og læti!!! hvað er málið??? viljiði plís halda ykkur á veginum og keyra almennilega, við íslendingarnir erum nú nógu fáir fyrir.......
ég ætla að leyfa mér að stoppa núna, enda alveg búin með allt ímyndunarafl til að skrifa meira...:)
Nú erum við "danirinir" komnir 2 tímum á undan ykkur íslendingunum!
Við gellurnar hérna í Álaborg héldum að við værum að fá útborgað í dag, en eitthvað höfum við misskilið það því ekki hefur neinn peningur komið inn á reikninginn minn, er búin að kíkja á hann á svona hálftíma fresti:)
við Nína erum búnar að vera vinna bara býsna mikið á Syrenbakken, sem er heimili fyrir fatlaða, og vorum við farnar að hlakka soldið mikið til að fá útborgað því við héldum að við værum að fara fá útborgaðann allann mars sem sagt 1 - 31, en nei það er víst svona 15 - 15 dæmi í gangi þar!!! urg og þá fáum við ekki eins mikið útborgað og við vorum búnar að vona, því við erum eila bara búnar að vinn í mars EFITR 15!!! ég er ekki ánægð......;)
en ég er liggur við bara búin að vinna með snilldar konum þarna á Syrenbakken, og ég tala bara dönsku, er að verða alveg ROSALEGA góð!!! hehe er að fara að vinna þar á miðvikudaginn og líka á uppáhalds deildinni minni.....jeij:P
er svo að fara að vinna í "Rækjunni" á morgun í fyrsta skipti!! það verður spennandi!!
það er eins gott að maður fái þá einhverja peninga, fyrst maður er í tveimur vinnum!!!
en ég setti inn nokkrar nýjar myndir frá því sem er hérna nálægt mér í Álaborg, götunum og húsunum og svona skemmtilegu:)
Nína er í vinnunni núna, það þýðir að ég get haft sjónvarpið hátt stillt, ég get eldað pastarétti og ég get sungið hátt með lögum!!! henni finnst hávaði leiðinlegur!!
hafiði einhverntíman pælt í því hvað margir hafa svona blogg eins og þetta og gera nákvæmlega þetta, segja bara frá hversdagleikanum en ekki því sem er að gerast í hausnum á manneskjunni?!?!?!
Gleðilega Páska allir. Við gellurnar hérna í Álaborg ákáðum að við gætum nú ekki verið minni en aðrir þannig við skelltum okkur í kokkabúninginn og elduðum páska mat. Ostafylltar kjúklingabringur og meðlæti:)mmmm nammi namm.....
þegar ég vaknaði í morgun og leit út um gluggann beið þessi líka fallega sjón eftir mér: Snjór!! ég vissi reyndar að hann væri á leiðinni, danirnir eru búnir að vera að spá honum núna undanfarið og alveg 10 stiga frost! og ég sem ég hélt að það væri bara kalt á Íslandi!!! hahaha......
Þó mér finnist rosalega gaman hérna úti þá er ég samt farin að hlakka til að sumarið komi og fara heim. ég bara elska sumarið heima í sveit. ekki bara að sveitin fyllist að fólki heldur er lang skemmtilegast í litla dalnum mínum á sumrin. Get ekki beðið eftir að fara á hestbak.
held ég hafi aldrei á ævinni verið eins fátæk og núna, eða allavega er það tilfinningin. ég á alveg 16 þús og þá á ég eftir að borga leiguna og lifa næsta mánuð af!! úff hvað þetta er gaman!!! Getur einhver sagt mér afhverju ég fæddist ekki með gullskeið í munninum eða er meðlimur af bresku konungsfjölskyldunni??;) hehe
veit þetta er lélegt blogg og finnst það æði!!!;)
hér er smá mynd af snjónum sem mætti mér í morgun:
Jújú það snjóar hérna. Ekki alveg sátt og þetta á víst að vera svona næstu daga, og ég sem hélt að ég væri ekki lengur á Íslandi!! einhver misskilningur.
við Nína erum á fullu í vinnumálunum, þurfum víst að borga leigu um mánaðarmótin:( erum farnar að fá fleiri vaktir á sambýlinu en við verðum aldrei neitt nema vikar þar þannig við erum að leita á fullu líka annarsstaðar. Erum meira að segja búnar að sækja um í rækjunni, okkur langar það mikið í pening.
Danirnir eru að missa sig í páskastússinu, þetta er bara eins og jól númer 2 á árinu hjá þeim!!!
Og hvað er málið með krónuna!!! 16.31!!!! arg þori ekki að hreifa við neinum peningi núna, lifi bara á loftinu!!!
Var að setja inn nokkrar myndir á myspace, bara að láta ykkur vita ( og mamma ef þú vilt sjá þær just let me know, læt þig fá passwordið:) ).
en get ekki tala að meir paradise hotel byrjað......omgomgomg!!! hehehe
p.s. þetta er það sem ég fékk af páskaegginu sem við Nína áttum......buhuu..... Nína skildi ekkert afhverju eggið var bara allt í einu búið!!!! finnst málið eitthvað gruggugt..........
Hverslags lúser er ég??? Af hverju á ég ekki pening?? jújú ég veit reyndar alveg afhverju. ég eyði þeim litla sem ég á og svo eftir á hugsa ég í hvað fór eila þessi peningur!?! Ég hér með lýsi eftir fjárfestum. Endilega látið mig vita ef þið vitið um einhverja sem hafa áhuga:)
annar er lítið að gerast hérna nema það hvað ég er peningalaus!!! Það var reyndar loksins farið að hringja í okkur til að byðja okkur að vinna og ég er alveg búin að fara á 2 vaktir, brjálað stuð, heilinn steiktur eftir að reyna að meðtaka alla þessa dönsku!!! lærið að tala!!!!!!!
En hvað á svo að gera í sumar gott fólk? sleikja sólina á klakanum? ef það er planið hjá ykkur þá muniði hitta mig...:) mun stunda það í sumar:)
En hvað ætliði að gera í haust? ætliði í skóla? ég ætla að reyna að drulla mér í skóla, er ekki kominn tími til þess...... finnst ég samt vera í lausu lofti með það...ég vil læra en svo fer ég að pæla, hvað get ég gert með það í "framtíðinni"( eins og hún sé ekki löngu komin). Ég man bara að þegar ég var yngri ( eins og ég sé eitthvað gömul:) ) þá hugsaði ég alltaf að þegar ég væri 22 þá væri ég farin að læra eitthvað og á leiðinni að vera eitthvað!!! hversu vitlaus var ég að halda það.....!!
váá hvað þetta var nú bara skemmtileg helgi....... gerðum ekki annað en að hrynja í það.......úps!!:)
en jújú við skuttluðumst á djammið á fös og hittum fullt af íslendingum djömmuðum með þeim, sumir kannski aðeins of mikið........nefni engin nöfn en manneskjan byrjar á N og endar á ína:) sköllóttir normenn voru gífurlega vinsælir og Nína fékk draum sinn uppfylltan.
og svo í gær héldum við smá kokteilpartý og blönduðum við alveg verstu kokteila sem ég veit um, breyttum aðeins uppskriftunum þannig kannski hefur það verið ástæðan.....:) en við allvega skemmtum okkur konunglega, skelltum okkur á Götuna og löbbuðum inn á alla bari á báðum um kokteila, engann bjór þetta kvöldið....en váá ég er ekki alveg að nenna að segja frá öllu kannski ekki alveg í "ástandi" til þess þannig hér eru nokkar myndir......